Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð stendur fyrir dansleik í Hömrum laugardagskvöldið 1. október í samstarfi við 1862 Nordic Bistro.
Dansleikurinn hefst klukkan 21.00 og stendur til klukkan 01.00. Miðaverð er 2000 krónur og 1500 krónur fyrir félagsmenn, miðasala fer fram við dyrnar.