Fara í efni
Rún viðburðir
Dags Tími
16 .apr '22 20:00

Tónleikasýning á söngleiknum vinsæla Hárinu verður í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 16. apríl. Sýningin verður aðeins sýnd þetta eina kvöld og sætafjöldi því takmarkaður. Þetta er fyrsta sýning Rún viðburða sem er nýtt viðburðafyrirtæki á Akureyri.

Aðal áherslan er á tónlistina sem söngleikurinn er hvað þekktastur fyrir. Lögin vinsælu Að eilífu, Syndir holdsins (Lifi ljósið), Frank Mills, Saurlífi, Allir geta sært og fleiri verða á sínum stað, flutt af hópi frábærra söngvara og tónlistarmanna. Á sviðinu verða sjö leikarar, fimm manna hljómsveit og tíu manna kór. Leikarar í sýningunni eru Arnþór Þórsteinsson, Árni Beinteinn, Hafsteinn Vilhelmsson, Ívar Helgason, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Guðný Ósk Karlsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Leikstjóri sýningarinnar er Aníta Ísey Jónsdóttir, tónlistarstjóri Guðjón Jónsson og framleiðandi fyrir hönd Rún viðburða er Jónína Björt Gunnarsdóttir. Kór sýningarinnar er Sönghópurinn Rok.

Þessi viðburður er styrktur af menningarsjóði Akureyrar.