Fara í efni
Leikfélag MA
Dags Tími
08 .mar '24 20:00
09 .mar '24
10 .mar '24
11 .mar '24
12 .mar '24
13 .mar '24
14 .mar '24
15 .mar '24
16 .mar '24
17 .mar '24

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir ævintýrasöngleikinn um spýtustrákinn Gosa eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson í Hofi. Gosi byggir á heimsfrægri sögu Carlo Collodi um spýtustrákinn og er sagan flestum kunn, ungum sem öldnum.

Söngleikurinn fjallar um spýtustrákinn sem smíðaður er af góðhjartaða leikfangasmiðnum Jakob sem þráir ekkert meira en að eignast lítinn dreng. Á töfrandi kvöldi birtist óskastjarnan og ósk Jakobs um að eignast lítinn dreng rætist er spýtustrákurinn lifnar við og fær nafnið Gosi. Á lífsleiðinni lærir strákurinn Gosi á tilfinningar sínar og mikilvægi þess að lifa hreinskilnu lífi. Hann lendir í alls kyns ævintýrum með Tuma engisprettu vini sínum og uppákomum eins og þeirri að þegar Gosi lýgur stækkar nef hans.

Það fer enginn ósnortinn heim eftir þessa sýningu en töfrar leikhússins, ástríða og hæfileikar unga fólksins glæða söguna lífi. Söngleikurinn er stútfullur af flottum dansatriðum, glæsilegri tónlist og góðum boðskap.

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri (LMA) hefur sett upp sýningar ár hvert frá árinu 1936. Sýningar LMA einkennast af miklum hæfileikum, metnaði, glæsibrag og töfrum. Hér er á ferðinni metnaðarfull uppsetning Leikfélags Menntaskólans á Akureyri þar sem hátt í 90 nemendur taka þátt í sýningunni hvort sem það er á sviðinu eða á bak við tjöldin.

Gosi lifnar við á ný í Hofi í leikstjórn Mörtu Nordal og tónlistarstjórn Þorvaldar Bjarna. Þetta er sýning sem engin manneskja vill missa af.