Fara í efni
Umskiptingar
Dags Tími
05 .okt '19 13:00
06 .okt '19
07 .okt '19
08 .okt '19
09 .okt '19
10 .okt '19
11 .okt '19
12 .okt '19
13 .okt '19
14 .okt '19
15 .okt '19
16 .okt '19
17 .okt '19
18 .okt '19
19 .okt '19
20 .okt '19
21 .okt '19
22 .okt '19
23 .okt '19
24 .okt '19
25 .okt '19
26 .okt '19
27 .okt '19
28 .okt '19
29 .okt '19
30 .okt '19
31 .okt '19
01 .nóv '19
02 .nóv '19
03 .nóv '19
04 .nóv '19
05 .nóv '19
06 .nóv '19
07 .nóv '19
08 .nóv '19
09 .nóv '19
10 .nóv '19

Skoðaðu leikskrána hér!

Ný íslensk og æsispennandi fjölskyldusýning sem sýnir kunnuglegar og áður óþekktar þjóðsagnapersónur á nýstárlegan og skemmtilegan hátt.

Í Hringvallaskóla opnast fyrir algjöra slysni gátt inn í heim íslenskra þjóðsagna. Saklausum sjöundabekking, Jóni Árnasyni er í kjölfarið rænt af Húmskollunni skelfilegu svo bekkjarsystkini hans Sóley og Bjartur leggja upp í háskaför honum til bjargar. Við tekur æsispennandi atburðarás þar sem hinar ýmsu kynjaverur íslenskra þjóðsagna koma fyrir, Nykur, Skoffín og Skuggabaldur ásamt fleirum. Ná þau að bjarga Jóni Árnasyni? Er Nykrinum treystandi? Hver á augun í myrkrinu? Hver er þessi Húmskolla? Er einhver leið að komast lifandi aftur til mannheima?

Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist er nýtt íslenskt barnaleikrit úr smiðju Umskiptinga, í leikstjórn Agnesar Wild og stútfullt af skemmtilegri tónlist eftir norðlenska dúóið Vandræðaskáld. Verkefnið hlaut styrk Leiklistarráðs og listamannalaun og er unnið í samstarfi við Menningarfélags Akureyrar.

Sýningin er ætluð 6 ára og eldri. Yngri áhorfendur eru á ábyrgð foreldra.

Höfundar: Leikhópurinn Umskiptingar

Leikstjórn: Agnes Wild

Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Jenný Lára Arnórsdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson, Margrét Sverrisdóttir, Sesselía Ólafsdóttir, Vilhjálmur B. Bragason

Tónlist: Vandræðaskáld

Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir

Sviðshreyfingar: Katrín Mist Haraldsdóttir

Ljósahönnun: Lárus Heiðar Jónsson

 

Sýningin er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneyti - Leiklistarráði