Fara í efni
Dags Tími
29 .nóv 20:00
Verð: 4.900 kr.

Daniele Basini, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir og Jón Þorsteinn Reynisson heiðra eitt ástsælasta kvikmyndatónskáld sögunnar Ennio Morricone, í tilefni af 98 ára afmæli meistarans.

Á tónleikunum flytur tríóið tónlist Morricone í nýjum útsetningum Daniele Basini fyrir gítar, selló og harmoniku. Þau leika tónlist úr m.a. Nuovo Cinema Paradiso, Once upon a time in America, og nokkrum góðum spaghettí-vestrum.

Samhliða tónlistinni verður sýnt myndbandsverk eftir Sindra Swan sem kallast á við tónlistina.