Fara í efni
Dags Tími
03 .nóv '19 14:00

Hildigunnur Einarsdóttir messósópran 

Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanó

 

Á þessum tónleikum verður íslenska sönglagið skoðað allt frá fyrsta íslenska sönglaginu sem vitað er um, til tónsmíða 20. aldar, til splunkunýrra tónsmíða Páls Ivans Pálssonar sömdum sérstaklega fyrir þetta tilefni. Hann mun velta fyrir sér arfleifð íslenska sönglagins og enduróma það í samtímanum.

 

Hildigunnur Einarsdóttir og Guðrún Dalía hafa getið sér gott orð fyrir lifandi og einlæga túlkun íslenskra sönglaga. Þær hafa áður lagst í rannsóknarvinnu á sönglögum Karls Ottós Runólfssonar en í framhaldi af því kom út diskur með nýjum útsetningum Hjartar Ingva Jóhannsonar á þeim 2014. Báðar hafa þær einnig haft sérstakan áhuga á höfundarverki Jórunnar Viðar, Hildigunnur hefur flutt verk hennar m.a. á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Guðrún Dalía gefið út geisladisk með öllum útgefnum lögum tónskáldsins á 90 ára afmæli hennar. Nýverið fluttu Hildigunnur og Guðrún Dalía ljóðaflokkinn Svartálfadans eftir Jón Ásgeirsson á afmælisári hans. Þessi tónskáld eiga sérstakan sess á efnisskránni sem einnig skartar söngperlum Sigvalda Kaldalóns og Páls Ísólfssonar ásamt nýjum sönglagaflokki Páls Ivans Pálssonar.

 

Það er Tónlistarfélag Akureyrar sem stendur fyrir þessum viðburði.