ELSKAN ER ÉG HEIMA?
✨Við kynnum fyrsta verk leikársins með stolti: Elskan er ég heima? eftir breska leikskáldið Laura Wade, í fyrsta sinn sett upp í íslensku leikhúsi!
Væri lífið ekki auðveldara ef allt væri eins og í gamla daga? Það finnst Gunnu, sem hefur tekið þá ákvörðun ásamt Jonna eiginmanni sínum að lifa lífsstíl áranna 1950 - 1960. Hún eyðir deginum í að gera hreint á heimilinu svo allt sé í röð og reglu áður en húsbóndinn kemur heim þar sem ferskur kokteill, troðin pípa og hitaðir inniskór bíða hans í vel innréttaðri íbúðinni og hvað á maður að segja við mömmu sína sem barðist fyrir jafnrétti og er ekki par sátt við fyrirkomulagið? Þau hjónin klæðast fiftís fötum og ísskápurinn er líka frá þeim tíma, sem væri kannski allt í lagi ef hann væri ekki alltaf að bila, því þótt flest hafi verið endingarbetra í gamla daga þá duga hlutir eins og bílar og ísskápar ekki að eilífu. Það getur verið dýrt að lifa á röngum áratug vegna alls viðhaldsins - og hvar á að kaupa föt sem passa lífsstílnum nema á internetinu? Hjónin verða því að svindla til að allt gangi upp.
Laura Wade er breskt leikskáld sem hefur skrifað á annan tug leikverka og er Darling, I´m Home þeirra þekktast og fékk hún fyrir það hin virtu Olivier leiklistarverðlaun árið 2019. Hún hefur einnig skrifað nokkur útvarpsleikrit fyrir BBC og er einn handritshöfunda sjónvarpsþáttaseríunnar Rivals hjá Disney+. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir hana ef sett upp í íslensku leikhúsi. Ilmur Kristjánsdóttir þreytir hér frumraun sína sem leikstjóri og Akureyringurinn Vilhjálmur B. Bragason staðfærir og þýðir verkið.
Ferskt, fyndið og skemmtilegt!
Leikstjórn: Ilmur Kristjánsdóttir
Höfundur: Laura Wade
Þýðing: Vilhjálmur Bergmann Bragason
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
Tónlist: Sigurjón Kjartansson
Ljós: Lárus Heiðar Sveinsson
Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson
Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir
Leikarar: Edda Björgvinsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Ólafur Ásgeirsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir
Frumsýnt 11. október 2025