Söngleikurinn Ðe Lónlí Blú Bojs segir frá ungum drengjum, þeim Sörla, Páli og Njáli. Saman skipa þeir lítinn sönghóp með stóra drauma. Þeir koma smáskífu til úrelts umboðsmanns að nafni Þorvaldur og landa hjá honum samningi. Þorvaldi finnst hljómsveitin ófullkomnuð og bætir inn honum Valdimari, og þannig verður hljómsveitin Ðe Lónlí Blú Bojs til. Sagan segir frá því hvernig bandið þróast þegar þessi nýji meðlimur er skipaður inn, hvernig ástin getur flækst fyrir og hvernig frægðin getur stigið manni til höfuðs.
Söngleikurinn er með lögum frá Ðe Lónlí Blú Bojs sem allir ættu að kannast við, þar á meðal Heim í Búðardal, Harðsnúna Hanna og Diggi Liggi Ló.
Söngleikur sem fólk á öllum aldri hefur gaman af!
Leikendur:
Agla Bríet Einarsdóttir
Berglind Alda Ástþórsdóttir
Ingi Þór Þórhallsson
Jón Svavar Jósefsson
Mímir Bjarki Pálmason
Styr Orrason
Vilberg Andri Pálsson
Leikstjóri og handritshöfundur:
Höskuldur Þór Jónsson
Lög og lagatextar:
Ðe Lónlí Blú Bojs
Sýninga- og framleiðslustjórn:
Máni Huginsson
Tónlistarstjórn:
Kristján Sturla Bjarnason
Brynjar Unnsteinsson
Söngstjóri:
Ásgrímur Geir Logason
Ljósahönnun:
Pálmi Jónsson
Ljósmyndun og plakatgerð:
Stefanía Elín Linnet
Sviðsmaður og leikmunavörður:
Karla Kristjánsdóttir