Fara í efni
Dags Tími
26 .feb 20:00
27 .feb 20:00
28 .feb 20:00
06 .mar 20:00
07 .mar 20:00
13 .mar 20:00
14 .mar 20:00
Verð: 7900

Birtíngur - Frumsýning 26. febrúar 2026!

Miðasala hefst 17. júní! Skráðu þig í Gullklúbbinn okkar hér og fáðu tilkynningu um leið og sala hefst, sem og upplýsingar um bestu tilboðin!

Birtíngur, ungur, óspilltur sakleysingi sem gerður er brottrækur frá bernskuslóðum sínum vegna ástar á hinni æðislegu Kúnígúnd, þvælist um heiminn og lendir í jarðskjálftum, stríðum, hýðingum, þrældómi og því skelfingaróhappi að stinga menn á hol. Þrátt fyrir þetta allt reynir hann að tileinka sér þá lífsspeki kennara síns, Altúngu, að allt sé í besta lagi. Reyndar segir Altunga orðrétt: ,,…þeir sem segja að allt sé í lagi eru hálfvitar, maður á að segja að allt sé í allrabesta lagi.” Birtíngur gefst því ekki upp á leit sinni að ástinni og vonast til að finna hina fögru Kúnígúnd á ný.

Birtingur, eftir Voltaire er ein frægasta háðsádeila sögunnar um stríð, ofbeldi, misskiptingu og óréttlæti heimsins. Hér er líka fjallað um fegurð, hjátrú, valdníðslu og harðstjórn með nístandi svörtum húmor. Allt til að komast að þeirri einföldu niðurstöðu að maður verði að rækta garðinn sinn.

Hér leiða saman hesta sína Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri, sem hefur leikstýrt stórsýningum eins og Mary Poppins, Billy Elliot og Bláa hnettinum, og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónskáld, sem þekktur er meðal annars fyrir tónlist sína í Ávaxtakörfunni, Benedikt búálfi, Gosa og hljómsveitinni Todmobile, ásamt glæsilegum leikhópi Leikfélags Akureyrar.

Hressandi, einlæg og fjörug sýning um skelfilegar hörmungar.

Leikstjórn og leikgerð: Bergur Þór Ingólfsson

Höfundur: Voltaire

Leikmynd: Sigríður Sunna Reynisdóttir

Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir

Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Ljós: Lárus Heiðar Sveinsson

Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson

Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir

Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Níels Thibaud Girerd, Sólveig Guðmundsdóttir, Urður Bergsdóttir

Frumsýnt 26. febrúar 2026

Viðvörun:

Verkið inniheldur senur um viðkvæm málefni og er bannað börnum. Til þess að spilla ekki fyrir upplifun þinni af verkinu hvetjum við þig til að fá nánari upplýsingar um sýninguna fyrirfram teljir þú að eitthvað gæti vakið upp óþægileg viðbrögð sem þú vilt forðast. Vinsamlegast hafið samband við midasala@mak.is