Fara í efni

Vorönn LLA hefst 21. janúar

Vorönn Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar hefst 21. janúar. Önnin er 12 vikur og lýkur með sýningu fyrir aðstandendur í Samkomuhúsinu 12.-14. apríl 2019.

Jenný Lára Arnórsdóttir, skólastjóri LLA, býður alla krakka velkomna í faglegan og skemmtilegan leiklistarskóla fyrir börn  og unglinga í  2.-10. bekk grunnskóla.  „Í skólanum læra börnin öll helstu undirstöðuatriði leiklistar en fyrst og fremst miðar námið að því að nemendur byggi upp sjálfstraust, hugrekki, aga og tækni, allt með gleðina í fyrirrúmi. Í vetur verða hóparnir ekki stærri en 12 börn til að mæta þörfum nemenda betur,“ segir Jenný Lára en allir kennarar skólans eru fagmenntaðir á sviði leiklistar.

Allar nánari upplýsingar um Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar má nálgast með því að senda fyrirspurnir á netfang skólans, lla@mak.is

Til baka