Fara í efni

Vorið vaknar á Akureyri

Menningarfélag Akureyrar setur upp hinn margverðlauna söngleik, Vorið vaknar (e. Spring Awakening), á næsta leikári. Söngleikurinn er byggður á samnefndu þýsku leikriti frá 1891 eftir Frank Wedekind og fjallar um tilfinningarót og fyrstu kynlífsreynslu unglinga í ófrjálslyndu og þröngsýnu samfélagi Þýskalands á 20. öld.  

Uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006, með leikkonuna Leia Michele innanborðs, hlaut átta Tony Awards og þar á meðal sem besti nýi söngleikurinn. Uppsetningin vann þar að auki fjölda annarra verðlauna og tilnefninga.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra verkinu en listrænir stjórnendur eru þeir sömu og í söngleiknum Kabarett sem Leikfélag Akureyrar setti upp í byrjun þessa leikárs. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson verður tónlistarstjóri, Auður Ösp Guðmundsdóttir sér um leikmynd og búninga, Gunnar Sigurbjörnsson hljóð, Ólafur Ágúst Stefánsson lýsinguna og danshöfundur verður Lee Proud.

„Vorið vaknar hefur allt sem bestu söngleikir hafa, áhrifamikla og sterka sögu og geggjaða tónlist. Við erum ótrúlega spennt að vera fyrsta atvinnuleikhúsið á Íslandi sem setur þennan söngleik á svið,“ segir Marta Nordal.

Haldnar verða áheyrendaprufur fyrir sýninguna en tímasetningin verður auglýst síðar. Söngleikurinn verður frumsýndur í Samkomuhúsinu í janúar.

Til baka