Fara í efni

Viltu hitta Litla skrímslið og stóra skrímslið?

Viltu hitta Litla skrímslið og stóra skrímslið? 

Skrímslin mæta á Amtsbókasafnið á fimmtudaginn kl. 16:30 til að lesa fyrir alla káta krakka. Á eftir verður svo föndrað! Endilega komdu og hittu skrímslin sem bíða spennt eftir að sjá ykkur!

Sýningin, Litla skrímslið og stóra skrímslið, verður frumsýnd í Hofi í janúar.  Miðaverð aðeins 3500 kr. Í Miðasölu Hofs fást bækurnar um skrímslin, eftir Áslaugu Jónsdóttur, sem sýningin byggist á. Bækurnar kosta aðeins 1500 kr. stykkið.  Gjafabréf á sýninguna eru frábær jólagjöf handa öllum krökkum. 

Til baka