Viðburðir næsta sýningarárs Menningarfélagsins komnir í sölu
Á næsta ári verða 120 ár liðin frá því að fyrsta sýningin var haldin í Samkomuhúsinu á Akureyri og að því tilefni blæs Leikfélag Akureyrar til afmælissýningar sem heiðra mun minningar um marga af þeim menningaviðburðum sem fyllt hafa veggi Samkomuhússins í leik, tali og tónum síðustu tólf áratugi.
Sú sýning er aðeins brot af fjölbreyttu úrvali viðburða sem Menningarfélag Akureyrar ætlar að setja á svið frá og með næsta október.
Friðrik Dór og SinfoniaNord verða með tvenna tónleika, Óperan opnar í Hofi, nýtt og ferskt leikverk um frumskóg fasteignamarkaðarins og margt fleira spennandi mun gleðja og göfga huga og hjörtu áhorfenda á komandi vetri.
Einnig mun Skilaboðaskjóða heimamannsins Þorvaldar Þorsteins vera sett á fjalir Samkomuhússins, fjölskyldufólki til mikillar gleði.
Hægt er að kynna sér spennandi úrval viðburða á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar, www.mak.is.