Fara í efni

Viðburðarík helgi í Hofi framundan!

Það er viðburðarík helgi framundan í Hofi þar sem nostalgísk popptónlist, myndlist, glæný tónverk og klassísk verk koma við sögu, bæði fyrir börn og fullorðna.
 
Fyrst bera að nefna að myndlistarsýningin „Hvað sé ég?“ opnar laugardaginn 18. apríl kl 14. Sýningin er menningar- og listkennsluverkefni nemenda í 5.-6. bekk í Glerárskóla á Akureyri, styrkt af Akureyrarbæ og Menningarfélagi Akureyrar og er hluti af Barnamenningarhátíðinni á Akureyri.
 
Á laugardagskvöldinu tekur  ABBA söngpartý við í Hamraborg kl 21 þegar fjórar af ástsælustu söngkonum landsins stíga á svið og flytja fyrir okkur stærstu smelli ABBA. Hér má búast við taumlausu stuði enda gestir hvattir til að syngja með og njóta um leið. 
 
Sunnudaginn 19. apríl kl 16 í Hömrum munu þau Einar Jóhannesson,klarínettuleikari, og Alessandra Pompili, píanóleikari, leika rómantísk tónverk hjónanna Clöru og Robert Schumann og samtímamanns þeirra Norbert Bürgmuller. Það er Tónlistarfélag Akureyrar sem stendur fyrir tónleikunum Draumur, saumur og síki.

 

Helginni lýkur svo með Uppskeruhátíð Upptaksins, tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna á Norðurlandi eystra, sunnudaginn 19. apríl kl. 17. Þar verða sjö ný lög eftir jafnmörg ungmenni á aldrinum 10-12 ára frumflutt af atvinnuhljóðfæraleikum, ásamt söngvurunum Gretu Salóme, sem jafnframt spilar á fiðlu,  og Ágústi Þór Brynjarssyni. Frítt er inn á tónleikana og öll hjartanlega velkomin.  Tónleikarnir eru líkt og myndlistarsýningin hluti af Barnamenningarhátiðinni á Akureyri.
 
Hlökkum til að sjá ykkur í Hofi og gleðilega Barnamenningarhátíð! 
Til baka