VERÐANDI listsjóður - Styrkir hafa verið veittir!
Veittir hafa verið styrkir úr listsjóðnum VERÐANDI fyrir árið 2025-2026. Það voru 21 umsókn sem bárust sjóðnum og 9 verkefni sem hlutu brautargengi. Við óskum þeim innilega til hamingju!
Eik Haraldsdóttir
Kvöldroði – Ný djasstónlist eftir Eik, 19. mars 2026
Eyþór Alexander Hallsson
Fönkkvöld með Big Bandi Eyþórs, 5. september 2025
Guðmundur Tawan, sumarlistamaður Akureyrar
Dýrð i Fagraskógi – tískusýning, 16. ágúst 2025
Helga Margrét Clarke
Raddir kvenna og kvára, 19. júní 2026
Jónína Björt Gunnarsdóttir
Krakkagleði í Hofi, 15. febrúar og 15. mars 2026
Matiss Leo Meckl
Rythmasögur, 7. ágúst 2025
Tinna Björg Traustadóttir
Ó MÆ GOD! Ég er þrítug +1, 17. október 2025
Yuliana Palacios
Malinche, 12. júní 2026
Styrkþegarnir, sem margir hverjir eru ungir að árum, bjóða gestum uppá spennandi, fjölbreytta og nýstárlega viðburði fyrir öll skynfærin á tímabilinu 8. ágúst 2025 til júníloka 2025. Frumsamið efni, glænýjar útsetningar í bland við kunnuglegt efni fyrir alla aldurshópa. Hér má nefna fönktónlist með Big Bandi, slagverksdúó, djass, tískusýningu, samtímadansverk, fróðleik og tónlist kvenna og kvára ásamt popptónlist og forvitnilegra viðburða fyrir börn.
„Það var frábært að sjá fjölbreytni umsóknanna sem bárust í ár, sjá metnað listafólksins og ungu grasrótarinnar sem vill nýta sér aðstöðuna hér í Menningarhúsinu Hofi fyrir þeirra flottu og krefjandi viðburði. Starfsfólk Menninghússins Hofs hlakkar til að taka á móti þeim í hús en fyrstu tveir viðburðirnir verða núna í ágúst næstkomandi.“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri VERÐANDI listsjóðs.
Megintilgangur Verðandi listsjóðs er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir listsköpun sína. Listsjóðurinn á að auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem húsakynni Menningarfélags Akureyrar búa yfir, auk þess að stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum og nýta þá möguleika sem þar eru fyrir fjölbreytta viðburði. Akureyrarbær, Menningarfélagið Hof og Menningarfélag Akureyrar standa á bak við Verðandi listsjóð.
Allir viðburðirnir verða sýnilegir á mak.is. Þar má finna nánari upplýsingar og hægt að tryggja sér miða á viðburðina framundan.