Fara í efni

Velkomin á kynningu fyrir páskatónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi

Tónskáldið Michael Jón Clarke mun halda kynningu á undan páskatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem fram fara í Menningarhúsinu Hofi á skírdag.

Á tónleikunum flytja Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Kammerkórinn Hymnodia Gloriu eftir Vivaldi ásamt fjölbreyttri dagskrá hátíðlegra barokkverka. Einsöngvarar eru Hildigunnur Einarsdóttir og Helena Guðlaug Bjarnadóttir. Hljómsveitarstjóri er Eyþór Ingi Jónsson og einleikari á trompet Vilhjálmur Ingi Sigurðarson.

Á kynningunni mun Michael kynna tónverkin, umhverfið og þær kringumstæður þar sem verkin urðu til. Sagt verður frá ýmsu um barokk tónlist almennt og hljóðfærin auk þess sem gripið verður lauslega niður í ævisögu tónskálda á léttari nótum. Michael mætir með lagnaefni úr Byko og ætlar að setja saman hljóðfæri á staðnum. Það gætu því heyrst nokkrir fagrir tónar já eða ófagrir.

Kynningin er haldin á veitingastaðnum í Hofi og hefst klukkustund fyrir tónleikana. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Tryggðu þér miða strax á þennan hátíðlega viðburð. Miðasala á mak.is

Til baka