Fara í efni

Vel heppnaðir tónleikar Upptaktsins í gær!

Frá vinstri fremri röð: Freyja Rán, Hákon Geir, Ólöf Birna, Ólöf Braga, Guðný Lilja, Sandra, Þorvald…
Frá vinstri fremri röð: Freyja Rán, Hákon Geir, Ólöf Birna, Ólöf Braga, Guðný Lilja, Sandra, Þorvaldur Adam.
Frá vinstri aftari röð; Kristín Sóley, Eyþór Ingi, Eydís, Stefán, Kristján, Ágúst Þór, Emil Þorri og Greta Salóme.

Það voru spennt ungtónskáld og gestir þeirra sem settust með fiðrildi í maganum inn í Hamraborg í Hofi í gær, sunnudaginn 19. apríl. Þar fóru fram afar vel velheppnaðir tónleikar Upptaktsins, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna.  Sjö verk eftir börn á aldrinum 10, 11 og 12 ára voru þar frumflutt við mikinn fögnuð gesta.  Popplög, nýklassík, kletzmer og nútímaverk barnanna fengu að njóta sín í flutningi atvinnuhljóðfæraleikara í útsetningu Gretu Salóme. 

„Ég held að mér sé óhætt að segja að ekki hafi verið þurrt auga í salnum eftir flutning verkanna sjö og fagnaðarlætin svo innileg í lok hvers flutnings. Ég fann sterkt hversu stolt ungskáldin voru af verkum sínum, svo ekki sé talað um áheyrendur enda ekki á hverjum degi sem atvinnuhljóðfæraleikarar flytja verk eftir svo ung tónskáld. Við erum ríkt samfélag með svo hæfileikarík og skapandi ungmenni í tónlist,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri Upptaksins.

Unghöfundarnir og verk þeirra :

Freyja Rán Kristínardóttir - Snjóstormur

Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir – Draumar

Hákon Geir Snorrason – Saman

Ólöf Birna Kristjánsdóttir

Ólöf Braga Ívarsdóttir – Tímavélin

Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske

Þorvaldur Adam Ásgeirsson – Blíða

Hljómsveit Upptaktsins:

Emil Þorri Emilsson – slagverk

Eydís S. Úlfarsdóttir - víóla

Eyþór Ingi Jónsson – flygill

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Stefán Ingólfsson - bassi

Ágúst Þór Brynjarsson - söngur og gítar

Upptakturinn á Akureyri er fyrir börn og ungmenni í 5. - 10. bekk á Norðurlandi eystra og er samstarfsverkefni Menningarfélag Akureyrar og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.

Til baka