Fara í efni

Viltu sjá um kaffihúsa- og veitingarekstur í Hofi? Umsóknarfrestur rennur út á miðvikudaginn

Frestur til að sækja um rekstur veitingastaðarins í Hofi rennur út á miðvikudaginn!

Menningarfélag Akureyrar leitar að nýjum rekstaraðila til að sjá um kaffihúsa- og veitingarekstur í Menningarhúsinu Hofi.

Menningarhúsið Hof er staðsett í miðbæ Akureyrar og er eitt af helstu kennileitum bæjarins. Í Hofi fer fram metnaðarfullt menningarstarf, þar er Menningarfélag Akureyrar með skrifstofur sínar og starfsemi ásamt Tónlistarskólanum á Akureyri, og hönnunarversluninni Kistu. Í Hofi er glæsileg aðstaða fyrir tónleika, veislur, fundi og ráðstefnur. Þar er fullbúið eldhús og góð aðstoða til veitinga- og kaffihúsareksturs. Úr veitingarýminu er fallegt útsýni til suðurs yfir Pollinn.

Umsækjendur skulu hafa reynslu af veitingarekstri og hafa sjálfbærni og gæði í fyrirrúmi í sínum rekstri. Í umsókninni eiga að koma fram hugmyndir og framtíðarsýn umsækjenda á veitingarekstur í Hofi ásamt tilboði í leigu á aðstöðinni.

Kröfur til rekstaraðila:

  • Bjóða upp á hágæða veitingaþjónustu til gesta Hofs.
  • Veitingaþjónusta á ráðstefnum, tónleikum, fundum og öðrum viðburðum sem fara fram í Hofi.
  • Samstarf við Menningarfélag Akureyrar vegna viðburða í Hofi.

Upplýsingar veitir Eva Hrund Einarsdóttir framkv. stjóri Menningarfélags Akureyrar eva@mak.is

Umsóknir sendist fyrir 25. janúar á netfangið umsoknir@mak.is

Til baka