Fara í efni

Stórsöngvarinn Valdimar verður með jólatónleika í Hofi

Stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson mun halda sína fyrstu stórtónleika í Hofi laugardagskvöldið 3. desember. Valdimar, sem þarf vart að kynna, mun koma fram ásamt fjölmennri hljómsveit.

Valdimar hefur verið einn þekktasti og dáðasti söngvari landsins undanfarinn áratug. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur víða gert garðinn frægan og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli. Hljómsveitarstjóri er hinn geðþekki Ómar Guðjónsson. Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum jólatónleikum, sem enginn ætti að missa af.

Miðasala er í fullum gangi á mak.is.

Til baka