Fara í efni

Valdimar með jólatónleika á laugardagskvöldið

Stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson snýr aftur og heldur jólatónleika í Hofi á laugardagskvöldið ásamt fjölmennri hljómsveit, blástri og bakröddum. Þetta skiptið býður hann einnig velkominn sérstakan hátíðargest, hinn goðsagnakennda Pálma Gunnarsson!

Valdimar þarf vart að kynna en hann hefur verið einn þekktasti og dáðasti söngvari landsins undanfarinn áratug. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur víða gert garðinn frægan og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli. Hljómsveitarstjóri er hinn geðþekki Ómar Guðjónsson.


Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum jólatónleikum, sem enginn ætti að missa af.

Örfáir miðar til á mak.is
Til baka