Fara í efni

Útgáfutónleikar Diana Sus í Hofi í kvöld

Tónlistarkonan Diana Sus heldur útgáfutónleika sína í Menningarhúsinu Hofi í kvöld. Þar mun Diana spila lög af sinni fyrstu sóló smáskífu „Winter Lullabies“ ásamt úrvali af eldheitum sumardjassi. Smáskífan er hluti af stærra verkefni þar sem hver hluti er tileinkaður sinni árstíð. „Winter Lullabies“ er tileinkuð löngum íslenskum veturum og þá sérstaklega þessum „covid-vetri“ þar sem minningum af sumri og vinum er fagnað. Diana mun einnig syngja lög sem eru ekki enn hljóðrituð. Píanó snillingurinn Risto Laur spilar undir.

„Winter Lullabies“ er samstarf við Sigfús Jónsson úr Hljómbræður Stúdíó ehf og hlaut styrk frá Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Á tónleikunum í kvöld mun Diana syngja, Kjartan Valdimarsson spilar á píanó, Pálmi Gunnarsson á kontrabassa og Ingvi Rafn á Trommur. 

Miðasala er í fullum gangi á mak.is.

Winter Lullabies and Summer Jazz er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.

 

Til baka