Fara í efni

Uppselt á Sunnanvind – Eftirlætislög Örvars Kristjánssonar harmonikkuleikara

Mikil eftirvænting er eftir tónleikunum Sunnanvindur – Eftirlætislög Örvars Kristjánssonar harmonikkuleikara sem fram fara föstudaginn 14. október í Menningarhúsinu Hofi.  Örvar var einn ástsælasti harmonikkuleikari þjóðarinnar. Á sextíu ára tónlistarferli gaf hann út þrettán hljómplötur sem áttu miklum vinsældum að fagna.

Minningartónleikar um Örvar voru fyrst haldnir í október 2021 og síðan endurteknir í apríl 2022. Vegna fjölda áskorana verða þeir nú haldnir á Akureyri föstudaginn 14. október. Á tónleikunum verða þekktustu lög Örvars leikin og sungin. Uppselt er á viðburðinn. 

Til baka