Fara í efni

Uppselt á Kvenfólk!

Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 29. september 323. sviðsetningu félagsins. Verkið er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum sem ber titilinn Kvenfólk. Dúettinn skipa þeir  Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen, en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins. Þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis  kvennahljómsveitar í sýningunni. Í verkinu fara þeir Hjörleifur og Eiríkur  á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur.  

Hundur í óskilum heldur hér áfram að varpa óvæntu ljósi á Íslandssöguna með húmorinn að vopni. Nú er komið að sögu kvenna og kvennabaráttu. Frá því að konan kom til landsins í lok nítjándu aldar hafa íslenskir karlmenn gert sitt besta til að laga sig að breyttum aðstæðum. En hefur okkur tekist sem skyldi? Sagan greinir frá örfáum konum - raunar svo fáum að það er búið að skíra rakettur í höfuðið á þeim öllum.  Hundur í óskilum veltir við hverjum steini og grefur upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar. 

Sýningin verður sýnd  í október og nóvember í Samkomuhúsinu. Salan á sýninguna gengur vel og er uppselt á frumsýningu og aðeins örfá sæti laus á fyrstu fjórar sýningarnar. 

Til baka