Fara í efni

Upplýsingamiðstöðin í Hofi opnuð aftur

Upplýsingamiðstöðin í Hofi hefur verið opnuð aftur eftir nokkurt hlé. Til að byrja með verður opið þar alla virka daga frá kl. 8-16 en í bígerð er að hafa einnig afgreiðslutíma um helgar þegar líður á sumarið.

Nýja upplýsingmiðstöðin veitir fyrst og fremst upplýsingar um Akureyri, Grímsey og Hrísey. Þar verða kort og bæklingar um bæinn og eyjarnar tvær en einnig bæklingar sem ná yfir allt Ísland. Ferðaþjónustuaðilum í næsta nágrenni við Akureyri er boðið að koma með bæklinga í upplýsingamiðstöðina en plássið er mjög takmarkað og því verður ekki hægt að bjóða fyrirtækjum í sveitarfélögum sem liggja fjær Akureyri að vera með efni þar.

Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar en ríkið hætti sem kunnugt er stuðningi við reksturinn fyrir um tveim árum og hefur starfsemin legið niðri af þeim sökum.

Fréttin birtist fyrst á vef Akureyrarbæjar. 

Til baka