Fara í efni

Upplýsingamiðstöðin í Hofi opin

Upplýsingamiðstöð ferðamanna var opnuð í Hofi mánudaginn 1. apríl. Opið verður alla daga frá kl. 10-15 en afgreiðslutíminn lengist í 8-16 yfir hásumarið.

Það er vel við hæfi að opna upplýsingamiðstöðina núna þegar líður að vori og komu skemmtiferðaskipa til bæjarins en von er á fyrsta skipi ársins til Akureyrar þann 14. apríl.

Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar. 

Til baka