Ungir áhorfendur á Sirkustónum
Mikil gleði var í Hofi nú á dögunum þegar skólatónleikarnir Sirkustónar voru fluttir af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Tónleikarnir vöktu mikla lukku meðal yngstu áhorfenda en hátt í þúsund leik- og grunnskólabörn fengu þar að upplifa litríka og fjöruga tónlist innblásna af heimi sirkussins.
Meðal annars voru lög úr teiknimyndunum Dúmbó, Entrance of the Gladiators spiluð ásamt Can-Can. Sóley Björk Einarsdóttir sá um hljómsveitarstjórn og útsetningar, Margrét Eir fór með hlutverk sirkusstjóra og leiddi börnin í gegnum heim sirkussins með líflegum söng og leiftrandi leikgleði. Sirkusstjórinn hvatti börnin til að nota ímyndunaraflið og taka þátt í ævintýrinu sem sveif um svið Hamraborgar.

Skólatónleikar SN eru mikilvægur þáttur í starfi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og gegna lykilhlutverki í að færa börnum lifandi tónlistarupplifun á aðgengilegan og eftirminnilegan hátt.