Fara í efni

Undrunaróp og hlátrasköll barna ómuðu úr Samkomuhúsinu

Undanfarna daga hafa glaðbeitt og forvitin sjö ára börn úr grunnskólum Akureyrar fyllt króka og kima Samkomuhússins. Tilefnið er leikverkið Leyndardómar leikhússins. Leikhúsrotturnar tvær, Rómeó og Júlía, hafa tekið vel á móti þessum föngulegu börnum, leitt þau um húsið og kynnt þeim leikhúsið og galdra þess. Ferðin í gegnum leikhúsið bauð upp á eitthvað skemmtilegt og forvitnilegt við hvert fótmál. Hrekkjóttur húsdraugur stríddi hópnum og Rómeó og Júlía sýndu honum virðingu en snéru hann af sér og héldu áfram ferð sinni í leit að viðeigandi búningum og sminki til þess að geta gert litla leiksýningu, þar sem börnin eru þátttakendur úti í sal. Undrun og gleði skein af hverju andliti og öll voru þau til í að hjálpa leikhúsrottunum, með miklum leikrænum tilþrifum.

Leyndardómar leikhússins er samvinnuverkefni Leikfélags Akureyrar og Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Leikverkið er í formi leiðsagnar um Samkomuhúsið,  þar sem kynning á þeirri vinnu sem fram fer í leikhúsinu er í forgrunni. Verkið er gert fyrir nemendur í 2. bekk grunnskóla og vonir standa til þess að þeim árgangi á Akureyri og nærsveitum bjóðist árlega hér eftir að koma í heimsókn í leikhúsið.

Leikstjóri og handritshöfundur er Jenný Lára Arnórsdóttir og það eru þau Níels Thibaud Girerd og Sólveig Guðmundsdóttir sem glæða gestgjafana og leikhúsrotturnar lífi. Tæknihönnuður er Ágúst Örn Pálsson, búningahönnun er í höndum Bjargar Mörtu Gunnarsdóttur og sýningarstjórar eru þær Þórunn Geirsdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir.

Í sömu viku og við fögnum degi alþjóðlegs barnaleikhúss, sem er 20. mars, hefur yngsta kynslóðin sannarlega þanið út viðinn í húsinu með gleði og eftirvæntingu um leið og hún hefur upplifað og kynnst göldrum leikhússins.

Við hlökkum til að taka á móti fleiri börnum á nýju ári.

Til baka