Fara í efni

Tólf skólar keppa í Fiðringi

Það er aftur komið að Firðingi á Norðurlandi!

Í fyrra tóku þátt átta grunnskólar frá Akureyri og nærsveitum í þessari hæfileikakeppni sem er að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Í ár eru það tólf skólar frá Fjallabyggð til Húsavíkur sem etja kappi og því höldum við tvö undankvöld og svo úrslitakvöld. Undankvöldin fara fram í Tjarnarborg Ólafsfirði 18. apríl og Laugarborg Eyjafjarðarsveit 19. apríl. Úrslitakvöldið fer svo fram í HOFI 25. apríl en það er Menningarfélag Akureyrar sem stendur á bak við Fiðring með dyggum stuðning SSNE, Barnamenningarsjóðs, Samfélagsjóðs Landsbankans, SBA og þátttökuskólanna allra.

Nemendur á unglingastigi þátttökuskólanna hafa samið sitt eigið atriði og æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu leiðbeinanda og mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð. Hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum. Einnig sér hópurinn alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi er heljarinnar skóli í sjálfu sér. Hápunkturinn er svo að hitta hin liðin og sýna afraksturinn á leiksviði með allri leikhústækninni og töfrunum.

Það verður spennandi að sjá og heyra hvað unga fólkinu okkar liggur á hjarta; hér fá þau tækifæri til að tjá það á skapandi hátt.

Kynnar á úrslitakvöldinu eru Vandræðaskáldin okkar Sesselía Ólafsdóttir og Vihjálmur B. Bragason og Villi kynnir líka á undankeppnunum. Fiðringslagið verður flutt í dómarahléi á úrslitakvöldinu en í ár kusu nemendur Röddina í klettunum með Gugusar sem mætir á staðinn og skemmtir áhorfendum.

Hægt er að næla sér í miða á undankeppnir Fiðrings á 1500 kr á mak.is.  Hér er hægt að kaupa miða í Tjarnarborg Ólafsfirði og  hér er hægt að kaupa miða í Laugarborg Eyjarfjarðarsveit. Úrslitakvöldið fer í ekki í almenna sölu fyrr en 24. apríl. Komið og sjáið sviðslistafólk framtíðarinnar!

Til baka