Fara í efni

Tvenna af metsölusýningunni BÍDDU BARA í Hofi á laugardaginn

Gaflaraleikhúsið mætir með metsölusýninguna Bíddu bara í Hof á laugardaginn!

Bíddu Bara hefur verið sýnd yfir 60 sinnum fyrir fullu húsi í Hafnarfirði. Sýningin, sem er alger hlátursprengja, er eftir stórstjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur. Þetta einlæga, beitta og drepfyndna verk fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir. Björk, Salka Sól og Selma byggja verkið alfarið á sinni eigin reynslu, draga ekkert undan en ljúga helling. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar konur (og fyrrverandi, núverandi og tilvonandi eiginmenn sem þora að koma). 

Þær Salka Sól, Selma og Björk leika öll aðalhlutverk, aukahlutverk, kvíðaverk og smáhlutverk í sýningunni auk þess að flytja snilldarlega helling af frábærri, nýrri tónlist eftir þær sjálfar og Karl Olgeirsson. Tvær sýningar eru á laugardaginn, sú fyrri klukkan 17 en seinni klukkan 20.

Miðasala hér

Til baka