Fara í efni

Tónaflóð leikskólabarna og TA

Tónlistarskólinn á Akureyri og leikskólar bæjarins bjóða öllum bæjarbúum á söngsal í Hofi dagana 5.-7. febrúar kl. 10.

Í vetur hófst nýtt samstarfsverkefni Tónlistarskólans, grunnskólanna og leikskólanna á Akureyri og kallast það Söngvaflóð. Það eru tveir elstu árgangarnir á leikskólunum, börn fædd 2012 og 2013, sem munu syngja af innlifun og leyfa öllum að heyra hvaða söngva þau hafa verið að læra í vetur.  Þessir hressu krakkar munu ásamt blásarasveit Tónlistarskólans flytja lög úr bókinni Trommur og Töfrateppi eftir Soffíu Vagnsdóttur tónmenntakennara og núverandi sviðsstjóra fræðslusviðs.

Þriðjudaginn 6. febrúar hefja Naustatjörn, Hulduheimar og Iðavöllur veisluna. Miðvikudaginn 7. febrúar koma Krógaból, Lundarsel og Kiðagil í Hof
og síðasta daginn, fimmtudaginn 8. febrúar er komið að Hólmasól, Tröllaborgum og Pálmholti.

Allir eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Til baka