Fara í efni

Töfrar kvikmyndatónlistar

Sunnudaginn 22. september verður skemmtilegur Barnamorgunn í Hofi þar sem þátttakendum er boðið að kynnast mikilvægi tónlistar í kvikmyndum og hvernig blæbrigði tóna skapa persónur og skipta máli í framvindu myndar.

Andrea Gylfadóttir tónlistarkennari og söngkona leiðir börnin inní undraheim tónlistar og fer með þau í heimsókn á æfingu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem undibýr sig fyrir bíótónleika fyrir alla fjölskylduna síðar þennan sama dag LÓI – þú flýgur aldrei einn og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Aldur: 6-12 ára. Skráning fer fram á HÉR. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

NORÐURORKA er styrktaraðili Barnamorgna Menningarfélags Akureyrar. Ekkert þátttökugjald er á Barnamorgnum.

Til baka