Fara í efni

Til hamingju með að vera mannleg

Sýningin fer fram í Hofi í mars 2024. Miðasala er hafin á mak.is
Sýningin fer fram í Hofi í mars 2024. Miðasala er hafin á mak.is

Sýningin Til hamingju með að vera mannleg verður sýnd í Menningarhúsinu Hofi 16. mars 2024. 

Sýningin er byggð á ljóðabók Siggu Soffíu sem hún samdi þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð í heimsfaraldri. Hvað gerir dansari sem getur ekki dansað? Verkið fjallar um mikilvægi vináttunar, um andlegan styrk og um samfélag kvenna sem standa hver með annarri.

Í verkinu dansa og leika föngulegur hópur kvenna leikkonurnar/dansararnir Nína Dögg Filippusdóttir og Svandís Dóra Einarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnardóttir og Ellen Margrét Bæhenz, Díana Rut Kristinsdóttir og Inga María Ólsen (sem leikur hlutverk Hallveigar Kristínar Eiríksdóttur).

Sýningin Til hamingju með að vera mannleg vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd á liðnu vori, hlaut afar lofsamlega umfjöllun og þrjár tilnefningar til Grímuverðlaunanna. Sýndar voru aukasýningar á stóra sviði Þjóðleihússinss í Október í tengslum við Bleiku slaufuna, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins.

Verkið verður nú sýnt á Hofi Akureyri þann 15. mars og mun 1000 kr, af hverjum seldum miða ganga til Krabbameinsfélags Akureyrar.

Sýningin Til hamingju með að vera mannleg vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd á liðnu vori, hlaut afar lofsamlega umfjöllun og þrjár tilnefningar til Grímuverðlaunanna.

Miðasala á mak.is

Til baka