Fara í efni

Þuríður Helga segir starfi sínu sem framkvæmdarstjóri lausu

Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar, hefur sagt starfi sínu lausu. Þuríður, sem hefur starfað sem framkvæmdarstjóri félagsins í sex ár, segir þann tíma hafa verið ævintýralegan.

„Þegar ég hóf störf var félagið í afar þröngri fjárhagsstöðu og mikil starfsmannavelta. Með samhentu átaki mín og starfsfólks tókst að snúa þessari stöðu við hratt og örugglega. Félagið hefur látið til sín taka í íslensku menningarlífi, fjárframlög til þess aukist og góður starfsandi og vinnugleði er einkennandi fyrir vinnustaðinn. Þrátt fyrir að njóta velgengni í starfi finn ég að hugurinn er farinn að leita annað og vil ég gefa mér meiri tíma til að sinna áhugamálum og þeim hugarefnum sem standa mér nærri,“ segir Þuríður Helga.

Samkvæmt formanni félagsins, Evu Hrund Einarsdóttur, verður staða framkvæmdastjóra auglýst í lok mánaðarins. „Þuríður hefur átt farsælt starf hjá félaginu og hefur ásamt öflugum starfshópi leitt velgengni þess síðustu árin. Samstarfið hefur verið mjög gott og það er eftirsjá af Þuríði sem við í stjórn óskum alls hins besta. Félagið stendur traustum fótum og það eru fjölmörg tækifæri framundan,“ segir Eva Hrund.

Til baka