Fara í efni

Þungarokksveitin Miomantis spilar í Hofi

Hljómsveitin Miomantis kemur fram ásamt hljómsveitinni Hugarró í Hofi þann 24. nóvember. Miomantis er hljómsveit sem hefur starfað á Akureyri frá árinu 2019 og spilar þungdrifið rokk sem má meðal annars líkja við eitthvað eins og Metallica, Alice In Chains, Nirvana, Melvins og fleira sem þar má nefna.

Miomantis er með þrjár EP plötur undir beltinu (Miomantis, BLEAK, The Mantis) og eru að gíra sig í að taka upp LP plötu sem mun vera sú fyrsta með söngefni frá þeim.

Á tónleikunum verður slatti af uppkomandi lögum ásamt blöndu af gamla efninu blandað við vel valdar ábreiður.

Miomantis skipar:
Davíð Máni Jóhannesson: Söngur/Gítar
Zophonías Tumi Guðmundsson: Bassi
Bjarmi Friðgeirsson: Trommur

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI liststjóði.

Til baka