Fara í efni

Þú kemst þinn veg er gestasýning LA

Þú kemst þinn veg.
Þú kemst þinn veg.

Leikfélag Akureyrar laðar að gestasýningar á hverju leiksári sem auka fjölbreytni, dýpka leikhúsupplifun og auðga leikhúslíf hér norðan heiða. Við höfum nýlokið að taka á móti Hún pabbi í Samkomuhúsinu og voru viðtökurnar frábærar og sýningin vel sótt. Þann 15. október tökum við á móti Þú kemst þinn veg sem er frelsandi og fyndin heimildarsýning sem veitir einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm. 

Leikverkið Þú kemst þinn veg byggir á sögu Garðars Sölva Helgasonar sem glímir við geðklofa en tekst á við erfiðleikana á einstakan og heillandi hátt með umbunakerfi sem hann hefur tileinkað sér. Verkið veitir einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm. Batann og bakslögin, líf á ofsahraða og líf einn dag í einu. 

Í leikverkinu fylgjumst við með persónunni Guðmanni halda fyrirlestur um Garðar Sölva besta vin sinn og umbunakerfið  hans. Fyrirlesturinn tekur heldur óvænta stefnu og þróast ekki beint eins og Guðmann ætlar sér. Allt gengur á afturfótunum, einföldustu hlutir verða flóknir og Guðmann strögglar við að leysa málin. Á köflum brýst leikhúsið inní verkið líkt og ranghugmynd og það skásta sem Guðmanni dettur í hug að gera til að fela stressið er að detta í"  að segja eins og eina sögu inná milli þess sem hann ætlar sér að byrja fyrirlesturinn... 

Þú kemst þinn veg var frumsýnt þann 1. mars 2015 í fyrirlestrarsal Norræna hússins. Það er skemmst frá því að segja að verkið fékk afar góðar viðtökur og jákvæð viðbrögð. Aðstandendur verksins fengu hvatningu hvaðanæva að um að halda sýningum áfram og því var verkið sýnt í Tjarnarbíói í október 2015. Einnig voru nokkrar hátíðarsýningar sýndar í tengslum við útgáfu bókarinnar Glímt við geðklofa síðastliðinn desember, en hún fjallar einmitt um Garðar Sölva og umbunakerfið hans. Þar að auki hefur verkið verið sýnt á Aco alone, leiklistarhátíð á Suðureyri og í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. 

Og nú heldur ferðalag verksins áfram með sýningu á Akureyri 15. október næstkomandi. Athugið að einungis er um þessa einu sýningu að ræða. Hægt er að tryggja sér miða á veislukortsverði til 30. september. 
 
Til baka