Þrjár Grímutilnefningar norður
Tilkynnt var um tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna í Tjarnarbíó í gær og hlaut Leikfélag Akureyrar þrjár tilnefningar. Fjölskyldusýningin Jóla Lóla var tilnefnd sem barnasýning ársins en sú sýning var samin að öllu leyti fyrir norðan og verður sýnd á ný um næstu jól.
Birta Sólveig Söring var tilnefnd sem leikkona ársins fyrir túlkun sína á Auði í söngleiknum Litla Hryllingsbúðin sem Leikfélagið setti upp síðasta haust og bætti svo við aukasýningum um páskana vegna mikillar eftirspurnar. Síðan var Unnur Elísabet Gunnarsdóttir tilnefnd fyrir dans og sviðshreyfingar ársins fyrir Litlu hryllingsbúðina.
Auk þess var Þórey Birgisdóttir tilnefnd sem leikkona ársin fyrir Ífigeníu í Ásbrú en sú sýning verður gestasýning Leikfélags Akureyrar á næsta ári og þess má geta að Þórey lék stórt hlutverk í Litlu Hryllingsbúðinni . Síðan var Ævar Þór Benediktsson tilnefndur sem leikari ársins fyrir Kafteinn Frábær en sú sýning mun einnig vera gestasýning hjá Leikfélagi Akureyrar á næsta leikári.