Fara í efni

Þorláksmessutónleikar Bubba í Hofi annað kvöld

Bubbi Morthens mætir í Hof annað kvöld, miðvikudagskvöldið 21. desember.

Þorláksmessutónleikaröð Bubba er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Þetta verður í 38. sinn sem Bubbi stend­ur fyr­ir Þorláksmessutónleikum. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 38 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Miðarnir ruku út um leið og þeir duttu í sölu svo það er löngu uppselt. 

Til baka