Fara í efni

Þau leika Torfa og Grímu

Mynd: Auðunn Níelsson
Mynd: Auðunn Níelsson

Þessir frábæru og hæfileikaríku krakkar voru valin úr hópi 90 barna sem mættu í leik- og söngprufur í haust fyrir söngleikinn Gallsteinar afa Gissa. Þórgunnur Una Jónsdóttir, Steingerður Snorradóttir, Örn Heiðar Lárusson og Daníel Freyr Stefánsson skipta á milli sín hlutverkum systkinanna Torfa og Grímu. Systkinin, sem búa á afar annasömu nútímaheimili, heimsækja afa Gissa sem liggur á spítala eftir gallsteinaaðgerð þegar lífið tekur óvænta stefnu.

Gallsteinar afa Gissa er nýr fjölskyldusöngleikur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Auk krakkana fara Karl Ágúst Úlfsson, María Pálsdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson, Birna Pétursdóttir, Margrét Sverrisdóttir og Benedikt Gröndal með hlutverk. Söngleikurinn verður frumsýndur 23. febrúar 2019 í Samkomuhúsinu og er miðasala hafin á www.mak.is

Til baka