Fara í efni

Þarf alltaf að vera grín? LIVE SHOW komið í sölu

Vinirnir og grínistarnir, Tinna, Tryggvi og Ingó, í hlaðvarpinu Þarf alltaf að vera grín? halda LIVE SHOW í Hofi á Akureyri laugardaginn 21. október. Miðasala hófst í morgun og er greinilegt að mikill spenningur er fyrir viðburðinum því miðarnir hafa flogið út!

Umræðuefnið mun að venju koma á óvart enda engin sýning eins en eitt er víst að þú munt skemmta þér konunglega.

Athugið að 18 ára aldurstakmark er á sýninguna. Miðasala á mak.is!

Til baka