Fara í efni

Sýningin Vorið kemur í Hofi í dag

Barnasögusýningin Vorið kemur er sýnd í Hofi í dag í tilefni sumardagsins fyrsta. Sýningin verður í Hömrum kl. 13.00.
 

Tveir álfar, þau Bríet blómálfur og Skringill skógarálfur, munu segja frá komu vorsins og færa börnunum glaðning svo börnin geti tekið þátt í að hjálpa vorinu að koma! Mikil gleði, leikur og söngur er í sýningunni í tilefni þess að lífríkið í náttúrunni er að vakna.

Skemmtileg og fræðandi sýning fyrir börn á leikskólaaldri.

Sýningin tekur 30 mín í flutningi.

Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og unnið í samstarfið við Menningarhúsið Hof.

 

 

 

Til baka