Fara í efni

Sýningin Vegamót stendur til fimmtudags

Nú fer hver að verða síðastur til að sjá sýninguna Vegamót sem stendur yfir í Hofi. 

Listakonan Aðalheiður S. Eysteinsdóttir er að baki sýningunni.

„Á vegamótum er horft um farinn veg og einstaka viðkomustaði tímans með allt það hafurtask sem fylgt hefur hverjum og einum í gegnum lífið. Fundnir hlutir, eins og mannfólkið, koma víða að og varpa ljósi á ólíka menningarheima en eru um leið vitnisburður um sömu gildi og sömu þrár hvert sem litið er.“

Sýningin stendur til fimmtudagsins 17. ágúst og er opin á opnunartíma Menningarhússins Hofs. 

Til baka