Fara í efni

Svartar fjaðrir – Gestaboð í Hofi

Menningardagskrá í tilefni af 100 ára útgáfuafmæli fyrstu ljóðabókar Davíðs Stefánssonar Svartar fjaðrir. Sunnudaginn 10. nóvember kl. 15:00.

Fáar íslenskar ljóðabækur hafa vakið aðra eins athygli og aðdáun og ljóðabókin Svartar fjaðrir sem var fyrsta ljóðabók Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi sem hefur verið gefin út 13 sinnum frá 1919-2011. Ljóðin flugu beint í hjarta landsmanna og eru þar enn.

Gestum er boðið í Menningarhúsið Hof í tilefni afmælisins. Í gestaboðinu í Hofi verður sungið og spjallað. Gestgjafinn María Pálsdótttir leikkona og frumkvöðull býður rithöfundinum og alþingismanninum Guðmundi Andra Thorssyni og áhugafólkinu Pétri Halldórssyni og Valgerði Bjarnadóttur til stofu til að ræða um líf og list skáldsins frá Fagraskógi, en útgangspunkturinn er ljóðabókin Svartar fjaðrir. Ljóð Davíðs eru opinská og ástríðufull. Þau bæði heilluðu og skelfdu og gefa tilefni til fjölbreyttrar menningardagskrár. Því munu Kammerkór Norðurlands, tónlistarkonurnar Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir og Ólafur Sveinn Traustason koma fram og leika gömul sem og frumsamin lög við ljóð Davíðs.

Um er að ræða samstarfsverkefni þriggja menningarstofnana á Akureyri: Menningarhússins Hof, Amtsbókasafnsins á Akureyri og Minjasafnsins á Akureyri.


Menningardagskráin fer fram í Hamraborg í Hofi og er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Enginn aðgangseyrir.


Viðburðurinn er styrktur af Sóknaráætlun og Norðurorku.

Til baka