Fara í efni

Sunnanvindur í Hofi á laugardagskvöldið

Tónleikarnir Sunnanvindur fara fram í Hofi á laugardagskvöldið!

Sunnanvindur er framhald tónleika sem haldnir voru undir sama nafni til minningar um Örvar Kristjánsson harmonikkuleikara. Nú breikkar lagavalið og fluttar verða sívinsælar dægurperlur.

Á dagskránni verða lög eins og Góða ferð, María Ísabel, Segðu ekki nei, Litla sæta ljúfan góða, Hvítur stormsveipur, Því ertu svona uppstökk, Ást, Vegir liggja til allra átta, Ég er kominn heim, Það er bara þú, og Láttu mjúkra lokka flóð auk vinsælustu laga Örvars eins og Sunnanvindur, Siglt í norður og Við förum bara fetið.

Óhætt er að segja að tónleikarnir hafi að geyma eftirlætislög Íslendinga!

Um sönginn sjá þau Grétar Örvarsson, Ragnheiður Gröndal og Karl Örvarsson. 

Það er nánast uppselt en örfáir miðar fást ennþá á mak.is. Fyrstir koma, fyrir fá!

Til baka