Fara í efni

Saint Pete og Karólína lofa rífandi stemningu og stuði á sumardaginn fyrsta!

Það verður sannkölluð tónlistarveisla á sviði Hamraborgar í Hofi á Sumartónum Ungmennaráðs Akureyrar  fyrsta dag sumars í tilefni Barnamenningarhátíðar á Akureyri.

Hina unga og hæfileikaríka Karólína Orradóttir stígur fyrst á stokk og hitar gesti salarins vel upp áður en hin akureyrska rappstjarna Saint Pete hoppar inn á fjalir Hamraborgar og tryllir gesti með rappi, rímnaflæði og hnyttnum textum.

Saint Pete er talinn einn skemmtilegasti rapparinn á landinu í dag. Hann skaust óvænt, ásamt Hreini Orra, upp á stjörnuhimininn 2023 með laginu “Akureyri” og frægðarsól þeirra félaga skín þar enn. Saint Pete gaf út sína fyrstu plötu, Græni pakkinn, árið 2024 með ofursmellinum Tala minn skít, sem rauk beint inn á vinsældalista og var tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem lag ársins 2025 í Hipphopp- og raftónlist. Mjög svo breytt útgáfa hans af Ladda laginu, Súperman, var einnig tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026, sem Hipphopp-lag ársins. Hann var valinn nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum sama ár.  Saint Pete er listamannsnafn tónlistarmannsins og Akureyringsins Péturs Más Guðmundssonar

Karólína Orradóttir er 15 ára Akureyringur. Hún hefur haft áhuga á tónlist frá unga aldri og hefur verið í söngnámi í fjögur og hálft ár. Þessa dagana stundar hún rytmískt söngnám á miðstigi við Tónlistarskólann á Akureyri.

Karólína syngur ekki bara, hún semur líka sitt eigið efni og þá grípur hún í alls konar hljóðfæri, mest í gítarinn en líka ukulele, hljómborð, munnhörpu og trommur. Hún hefur gefið út eitt lag en annað lag er væntanlegt bráðlega, svo er aldrei að vita nema hún fari að skella í plötu. 

Karólínu til fulltingis á sviðinu verður Hallgrímur Jónas Ómarsson sem spilar undir á gítar.

 

Kynnar Sumartóna eru þær Aldís Ósk Arnaldsdóttir og Ólöf Berglind Guðnadóttir, fulltrúar Ungmennaráðs Akureyrarbæjar. 

Það er Ungmennaráð Akureyrar í samvinnu við Mennningarfélag Akureyrar sem standa að viðburðinum með styrk frá  Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar. 

Til baka