Stórtónleikar Orkester Norden í Hamraborg
Orkester Norden efna til glæsilegra stórtónleika í Hamraborg laugardaginn 25. júlí kl. 16. Á efnisskránni eru sígild meistaraverk eftir tónskáldin Franz Schubert, Igor Stravinsky, Carl Nielsen og Ludwig van Beethoven.
Orkester Norden er eitt af helstu norrænu samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Hljómsveitin er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku eftir strangt inntökuferli. Fjórir ungir íslenskir hljóðfæraleikarar leika með hljómsveitinni að þessu sinni. Sólrún Svava Kjartansdóttir fiðluleikari, Hanna Kristín Stefánsdóttir og Helga Björg Kjartansdóttir víóluleikarar og Karen Jóna Steinarsdóttir flautuleikari.
Undanfarna viku hefur hljómsveitin verið við æfingar hér í Hofi en auk þess hafa þau leikið listir sínar víðs vegar um bæinn og glatt bæði íbúa og gesti. Orkester Norden býður gestum hjartanlega velkomna að njóta afraksturs æfinganna á glæsilegum lokatónleikum í Hamraborg.
Athugið að enginn aðgangseyrir er á tónleikana.
Lestu meira um viðburðinn hér.