Fara í efni

Stjórnin og SinfoniaNord um páskana 2024

Stórhljómsveitin Stjórnin kemur fram í fyrsta sinn með sinfóníuhljómsveit í Menningarhúsinu Hofi um páskana 2024. Skemmtilegur bræðingur vandaðrar popptónlistar við hljóm sinfóníunnar. Einsöngvarar eru að vanda Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson.

Útsetningar og hljómsveitarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.

Ekki missa af einni vinsælustu popphljómsveit Íslandsögunnar ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands um páskana í Hofi.

Tryggðu þér miða strax á mak.is.

Til baka