Fara í efni

Standandi uppklapp á Kvenfólk!

Leikfélag Akureyrar frumsýndi Kvenfólk eftir Hund í óskilum síðastliðinn föstudag í Samkomhúsinu. Verkið er drepfyndið, revíuskotin sagnfræði með söng og tónlist. Í sýningunni fer Hundur í óskilum á hundavaði yfir kvennasöguna og veltir við hverjum steini og þúfu við mikla kátínu og gleði áhorfenda.  

Á frumsýningunni  var mikið hlegið, klappað, sungið með og sumir fengu ryk í augað. Í lok sýningar risu áhorfendur úr sætum og hylltu flytjendur og höfunda ásamt listrænum stjórnendum.

Hundur í óskilum; þeir Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen eru bæði höfundar og flytjendur verksins. Þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis  kvennahljómsveitar í sýningunni og leikstjórnar Ágústu Skúladóttur.

Hundur í óskilum varpar óvæntu ljósi á Íslandssöguna með húmorinn að vopni í sýningunni. Nú er komið að sögu kvenna og kvennabaráttu. Frá því að konan kom til landsins í lok nítjándu aldar hafa íslenskir karlmenn gert sitt besta til að laga sig að breyttum aðstæðum. En hefur okkur tekist sem skyldi? Sagan greinir frá örfáum konum - raunar svo fáum að það er búið að skíra rakettur í höfuðið á þeim öllum.  

Miðasala á komandi sýningar er fullum gangi og fara miðar hratt. Verkið er sýnt í október og nóvember í Samkomuhúsinu en uppselt var á allar sýningar fyrstu sýningarhelgina. 

Smelltu hér til að tryggja þér miða

Til baka