Fara í efni

Söngleikjaveisla í Hofi

Arctic ópera flytur söngleikjaprógram í Hömrum í Hofi sunnudaginn 28. apríl. 

Flutt verður prógram úr vinsælustu söngleikjum veraldar, frá Showboat til Sunset Boulevard, frá Porgy and Bess til Phantom of the Opera. Michael Jón mun kynna söngleikina. Myndum úr frægum söngleikjum verður varpað uppá tjald. Átta söngvarar munu flytja þekktustu sönglög og dúetta söngleikjanna.

Söngvarar eru Guðrún Ösp Sævarsdóttir, Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Hlini Gíslason, Margrét Árnadóttir, Michael Jón Clarke, Reynir Gunnarsson, Rósa María Stefánsdóttir og
Tiiu Laur. Risto Laur leikur með á píanó af hans alkunnu snilld.

Þetta verður sannkölluð söngleikjaveisla. Miðasala í fullum gangi á mak.is

Til baka