Fara í efni

Söngdrottningin Andrea Gylfadóttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hofi

Andrea Gylfadóttir syngur perlur kvikmyndanna í Hofi 19. október. Sérstakur gestur: Phillip Doyle.
Andrea Gylfadóttir syngur perlur kvikmyndanna í Hofi 19. október. Sérstakur gestur: Phillip Doyle.

Norðlenska söngdívan Andrea Gylfadóttir syngur smelli úr kvikmyndum á borð við Goldfinger, Smile og Calling you ásamt perlum frá farsælum söngferli hennar á tónleikunum Andrea Gylfadóttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Tónleikarnir fara fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 19. október. Kjartan Valdemarsson útsetur lögin og stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Bandaríski saxafónsnillingurinn Phillip Doyle er sérstakur gestur kvöldsins en auk hans ganga meistarar á borð við Einar Scheving, Pálma Gunnarsson, Sif Tulinius og Kristján Edelstein til liðs við SN á þessum jazzskotnu sinfóníutónleikum.

Kvöld sem enginn tónlistarunnandi vill láta framhjá sér fara. Tryggðu þér miða HÉR.

Til baka