Fara í efni

SN hyllir LA í tilefni 100 ára afmælis

 

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hyllir Leikfélag Akureyrar  með revíuskotnum sinfóníutónleikum í tilefni af 100 ára afmæli þess. Töfrandi minningaleiftur úr sögu LA í Hamraborg laugardaginn 23. september kl. 20. Þar verða flutt söngleikjalög, revíulög, farsakennd lög, popplög, rokklög og aríur sem einhvern tímann hafa ómað í Samkomuhúsinu síðustu öldina. Stiklað verður á stóru í sögu LA með hjálp góðra gesta. Þar verða í broddi fylkingar þau Selma Björnsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Andrea Gylfadóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Greta Salóme Stefánsdóttir og ljóti hálfvitinn séra Oddur Bjarni Þorkelsson.

Í áranna rás hafa leikhúsgestir af öllu landinu upplifað ógleymanlegar stundir í Samkomuhúsinu, áður stóra en nú litla leikhúsinu með stóra hjartað á Akureyri. Stundum hafa sönglögin úr leikritunum eða söngleikjunum verið uppspretta þessara góðu minninga. Þar má nefna lögin úr Fiðlaranum á þakinu, Óliver, Delerium bubonis, Þið munið hann Jörund, Gulleyjunni, Söngvaseiði, Kysstu mig Kata og fleiri verkum. Á tónleikunum rifjum við upp þessar töfrastundir. 

 

Listrænn stjórnandi: Greta Salóme Stefánsdóttir

Heiðursgestir: Saga Jónsdóttir, Sunna Borg og Gestur Einar Jónasson

Tónskáld og textahöfundar: Ýmsir

Útsetningar: Kjartan Valdemarsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

 

Landsbankinn er styrktaraðili LA perlna. 

Til baka